Linux er stýrikerfi líkt og Apple OS X, Windows XP eða Windows 98.
Þrátt fyrir að vera ólík, hafa öll stýrikerfi ákveðin einkenni. Öll gera þau hugbúnaðinum þínum kleift að hafa samskipti við vélbúnaðinn: að skrifa á harða diskinn, lesa af geisladiski og spila tónlist í gegnum hátalarana. Að framkvæma þessa hluti er verk stýrikerfisins.
Hvar liggur munurinn? Ekkert stýrikerfi er samhæft öllum þekktum vélbúnaði. Apple stýrikerfi eru einungis samhæf Apple tölvum. Microsoft Windows stýrikerfi eru sveigjanlegri og keyra á breiðari hóp vélbúnaðar. En ef þú reynir að keyra Windows stýrikerfi á Apple tölvu kemstu að því að jafnvel Windows stýrikerfi hafa sínar takmarkanir!
Linux stýrikerfi keyra aftur á móti jafnt á Apple tölvum og PC tölvum. Linux keyrir jafnvel á öflugum SUN vinnustöðvum og IBM ofurtölvum! Linux er augljóslega sveigjanlegasta stýrikerfið. Linux unnendur eru fljótir að benda á sambandið á milli þessa sveiginleika og hugtaksins frjáls hugbúnaður, sem gerir hverjum sem er kleift að breyta hugbúnaðinum eftir því sem hentar.
Að sjálfsögðu hefur Linux líka sína veikleika. Þegar vélbúnaðarframleiðendur kynna nýjar vörur láta þeir alltaf Windows rekla fylgja en Linux reklar fylgja ekki alltaf. Í sumum tilfellum verða Linux notendur að bíða marga mánuði eftir að reklar verði aðgengilegir. Þetta vandamál mun vafalaust hverfa eftir því sem Linux verður vinsælla og áhrifameira.